Skilmálar
TYABB ehf.
Kennitala: 470824-1660
Netfang: hello@bambamhouse.is
Sími: 772-6565
Greiðsla:
Kaupandi getur innt greiðslu af hendi með kreditkorti, debetkorti, Aur eða Netgíró.
Kortafærslur fara í gegnum örugga greiðslusíðu Teya.
Endurgreiðsla og skilaréttur
Ef þú velur að fá endurgreitt endilega hafðu samband við okkur: hello@bambamhouse.is. Þú hefur 30 daga til að skila og skipta vöru eftir að þú færð hana afhenta. Varan þarf að vera ónotuð og í óopnuðum umbúðum eða með viðeigandi merkimiða á til að fá endurgreitt. Ath: Sendingargjald er aldrei endurgreitt.
Til að skila þarf að senda vöruna með Dropp - í sendingunni er skilamiði og upplýsingar til að koma vörunni aftur til okkar:
Dropp N1 Ártúnshöfði.
Sími 7726565
TYABB EHF
Vöruverð:
Öll vöruverð eru birt með fyrirvara um prentvillur og áskilum við okkur rétt til að hætta við viðskipti hafi rangt verð verið gefið upp.
Vinsamlega athugið að vöruverð getur breyst án fyrirvara.
Innihaldslýsingar, myndir og aðrar upplýsingar:
Allar upplýsingar á síðunni eru birtar með fyrirvara um mögulegar prentvillur og myndbrengl.
Trúnaður:
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Pöntun:
Þegar pöntun er afgreidd á vefsíðunni og pöntun hefur verið staðfest með töluvpósti (Pöntunarstaðfesting) er kominn á bindandi samningur um kaup. Pöntunarstaðfestingin er send á netfangið þitt þegar Bambam hefur skráð pöntunina og móttekið greiðslu. Pantanir skráðar á föstudögum, laugardögum, sunnudögum og öðrum helgidögum verða staðfestar eigi síðar en næsta virka dag.
Afhending:
Afhending pantana fer almennt fram innan 1–3 virkra daga frá staðfestingu pöntunar
Þegar pöntun er send frá vörugeymslu okkar færð þú senda staðfestingu með upplýsingum um hvernig á að fylgjast með sendingunni. Athugaðu að rekjanleiki er aðeins mögulegur á pöntunum sem sendar eru með Póstinum og Dropp.
Ef um er að ræða forpöntun þá gildir sá tímarammi sem var tekið fram skýrt á hverri vöru fyrir sig.
Annað:
BamBam House áskilur sér rétt til að breyta skilmálum þessum hvenær sem er.