Skip to product information
1 of 5

BamBam House

5X FACE MASK BOX Élixir Intense

5X FACE MASK BOX Élixir Intense

Regular price 4.690 ISK
Regular price Sale price 4.690 ISK
Sold out

5 maskar í pakka Élixir Intense frá RARE Paris eru djúpnærandi andlitsmaskar sem veita húðinni raka, mýkt og heilbrigðan ljóma. Maskarnir eru sérstaklega þróaðir fyrir húð sem skortir raka og næringu og hjálpa til við að draga úr þurrki, þéttleikatilfinningu og daufu yfirbragði á meðan þeir skilja húðina eftir slétta, fyllri og endurnærða.

Formúlan inniheldur hýalúrónsýru sem bindur raka í húðinni og hjálpar til við að viðhalda fyllingu hennar á meðan squalane nærir húðina og myndar mjúka verndandi filmu sem hjálpar til við að verja gegn rakaþurrki og ytri áreiti. Samsetningin styður einnig við teygjanleika húðarinnar og gefur henni mýkra og heilbrigðara útlit.

Maskarnir eru framleiddir úr mjúkum, lífbrjótanlegum plöntutrefjum sem leggjast þétt og þægilega að andlitinu fyrir hámarks upptöku serumins og spa-líka upplifun heima við. Fullkomnir þegar húðin þarfnast extra raka, næringar og ljóma.

Upplýsingar:

Nærandi og rakagefandi andlitsmaski með hýalúrónsýru og squalane sem fyllir húðina djúpum raka, mýkir þurra og þreytta húð og skilur hana eftir silkimjúka, fyllta og ljómandi af heilbrigðum glow-i.

Innihald:

Aqua, Propylene Glycol, 1,2-Hexanediol, Hydroxyethylcellulose, Xanthan Gum, Dipotassium Glycyrrhizate, Sodium Hyaluronate, PEG-40 Hydrogenated Castor Oil, Caprylhydroxamic Acid, Glycerin, Squalane, Glucosyl Ceramide, Pentylene Glycol, Parfum, Triethanolamine, Hexyl Cinnamal.

View full details